Persónuverndarstefna
HealthPack á Íslandi ehf tryggir eftir fremsta megni öryggi þeirra persónuupplýsinga sem safnað er um viðskiptavini og aðra þá sem við eigum í samskiptum við. Persónuverndarstefnu þessari er ætlað að upplýsa um hvaða persónuupplýsingar félagið safnar, með hvaða hætti félagið nýtir slíkar persónuupplýsingar og hverjir fá aðgang að upplýsingunum.
- Tilgangur og lagaskylda
HealthPack á Íslandi safnar eingöngu nauðsynlegum upplýsingum til að sinna eðlilegri starfsemi fyrirtækis og tryggja góða þjónustu handa viðskiptavinum. Persónuverndarstefna HealthPack á Íslandi byggir á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
- Hvað eru persónuupplýsingar
Persónuupplýsingar í skilningi stefnu þessarar eru hvers kyns upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling, þ.e. upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til ákveðins einstaklings. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar.
- Persónuupplýsingar sem HealthPack á Íslandi safnar
Grunnupplýsingar s.s. nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang. Notkunarupplýsingar, greiðsluupplýsingar og samskiptasögu. Auk upplýsinga sem safnað er með vafrakökum á vefsíðu.
- Miðlun persónuupplýsinga
HealthPack á Íslandi deilir að jafnaði ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila. Okkur kann hins vegar að vera nauðsynlegt að afhenda persónuupplýsingar t.d. til eftirlitsaðila, annarra stjórnvalda eða lögaðila sem HealthPack á Íslandi á í viðskiptasambandi við og eru hluti af eðlilegri starfsemi.
- Varðveisla persónuupplýsinga
Persónuupplýsingar eru varðveittar á meðan viðskiptasamband er í gildi, eins lengi og lög kveða á um eða lögmætir hagsmunir og reglur HealthPack á Íslandi krefjast og málefnaleg ástæða gefur tilefni til. HealthPack á Íslandi tekur öryggi persónuupplýsinga mjög alvarlega og mun tryggja öryggi þeirra eftir fremsta megni. Öll samskipti á vefsíðu HealthPack á Íslandi eru dulkóðuð.
- Vafrakökur
Við notum vafrakökur til að auka virkni vefsíðunnar og bæta upplifun þeirra sem heimsækja síðuna. Með því að halda áfram að nota vefsíðuna samþykkir þú stefnu okkar um vafrakökur.
Vafrakökur (e. cookies) eru litlar textaskrár sem eru vistaðar á tölvunni þinni eða öðrum snjalltækjum sem þú notar þegar þú heimsækir vefsíður. Vafrakökur innihalda ekki persónuupplýsingar á borð við nafn þitt eða kennitölu en eru notaðar til að bæta frammistöðu vefsíðna. Einnig safna vafrakökur tölulegum upplýsingum s.s. fjölda og uppruna heimsókna á vefsíðu og annað sem hjálpar okkur að veita markvissari þjónustu.
Vafrakökur frá þriðja aðila, t.d. samfélagsmiðlum, kunna að vera notaðar og við höfum ekki stjórn á því hvernig þessir aðilar nota upplýsingar.
Notendur geta og er ávallt heimilt að stilla vefvafra sína þannig að notkun á vafrakökum er hætt, þannig vistast vafrakökurnar ekki eða vefvafrinn biður um leyfi notenda fyrst. Slíkar breytingar geta hins vegar dregið úr virkni á vefsíðu.
- Réttindi einstaklinga
Einstaklingar geta fengið upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar eru geymdar um þá hjá HealthPack á Íslandi. Einnig geta þeir átt rétt á að persónuupplýsingum um þá sé eytt, þær leiðréttar eða vinnsla þeirra sé takmörkuð. Einstaklingar geta átt rétt á því að gögn um þá séu flutt til þeirra sjálfra eða annars ábyrgðaraðila á tölvutæku formi. Þessi réttindi geta verið takmörkuð við ákveðnar persónuupplýsingar og eiga ekki við í öllum tilvikum. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi persónuverndarstefnu HealthPack á Íslandi eða það hvernig við vinnum með persónuupplýsingar þínar, vinsamlegast hafðu samband við okkur á island@healthpack.eu
- Breytingar á persónuverndarstefnu
Persónuverndarstefna HealthPack á Íslandi er endurskoðuð reglulega og áskiljum við okkur rétt til að breyta henni eftir því sem þurfa þykir eða nauðsynlegt er samkvæmt lögum.
- Gildistaka
Persónuverndarstefnan var síðast uppfærð 23. janúar 2024.