- ALMENN ATRIÐI
- Þessi skilyrði eiga við um samning um afhendingu vöru til endanlegra viðskiptavina á Íslandi.
- MÁLSAÐILAR
- Seljandi:
HealthPack á Íslandi
Gísli Eiríksson
Pósthólf 10009
130 Reykjavík
Sími: 519-8770
Netfang: island@healthpack.eu.Gísli Eiríksson kt:120176-3589 og hér eftir nefndur „HealthPack á Íslandi“, „við“ eða „okkur“.
Kaupandi:
Aðilinn sem skráður er sem kaupandi í pöntuninni og hér eftir nefndur „þú“, „þinn“ eða „viðskiptavinurinn“.
Áskriftin er mánaðarleg og ef þú lætur okkur ekki vita að þú munir segja upp áskriftinni minnst 5 dögum fyrir næstu áætluðu afhendingu, skuldbindur þú þig til að taka við vörunni. Áskriftin mun stöðvast frá næstu áætluðu afhendingu.
Breytingar á vörum og afhendingarmáta geta átt sér stað. Áður en breytingarnar taka gildi verður send tilkynning með góðum fyrirvara. Ekki verður sérstaklega tilkynnt um minniháttar breytingar, svo sem breyttar umbúðir, nema á vefsíðu okkar.
Þú verður að hafa náð 18 ára aldri til að kaupa vítamín frá okkur.
Kynningartilboð eiga aðeins við um nýja viðskiptavini og aðeins einu sinni fyrir hvern viðskiptavin.
Tilkynning um verðbreytingar verður send með góðum fyrirvara og eigi síðar en tveimur mánuðum áður en verðbreytingin tekur gildi.
Við teljum okkur hafa náð þessu og erum fullviss um að þú sem viðskiptavinur kunnir að meta vöruna okkar.
Þess vegna bjóðum við upp á 30 daga opin kaup á fyrsta pakkanum. Þetta þýðir að þú getur skilað vörunni innan 30 daga frá afhendingardegi og fengið alla upphæðina endurgreidda (að frátöldum sendingarkostnaði) Jafnvel þótt þú hafir opnað pakkann og notað fæðubótarefnið getur þú skilað því sem er eftir og fengið peningana þína til baka. Ef þú hefur valið áskriftarpakka munum við sjálfkrafa stöðva áskriftina þegar vörunni hefur verið skilað.
Allt sem þú þarft að gera er að senda tölvupóst á island@healthpack.eu og segja okkur af hverju þú vilt skila vörunni. Þú getur skilað vörunni af hvaða ástæðu sem er.
Athugasemdir þínar gagnast okkur við frekari vöruþróun.
Til þess að afturköllunarréttinum verði framfylgt þarf varan að koma aftur til okkar í sama magni og ástandi og hún var þegar þú fékkst hana afhenda. Ef til skila kemur þarf viðskiptavinurinn að greiða sendingarkostnað.
Hafðu samband við þjónustuver okkar fyrir nánari upplýsingar um hvernig á að nota afturköllunarréttinn.
Ef umbúðirnar eru skemmdar, opnar eða á einhvern hátt óviðunandi, vinsamlegast láttu okkur vita líka.
Sem viðskiptavinur samþykkir þú að HealthPack á Íslandi geti notað hvers konar tengslaform, þar á meðal bréf, síma, tölvupóst og SMS til að upplýsa þig um um vörur eða markaðssetja vöruframboð okkar. Hafðu samband við þjónustuver okkar ef þú vilt afturkalla þetta samþykki.
Í öllum tilvikum er kaupanda skylt að leggja fram kvörtun sína innan eðlilegs tíma eftir að gallinn er uppgötvaður. Ef um er að ræða kvartanir, villur og annmarka munum við standa undir öllum flutningskostnaði. Hafðu samband við þjónustuver okkar ef þú vilt nota kvörtunarréttinn eða hefur einhverjar spurningar varðandi kvörtun.
Ef þú vilt segja upp samningnum út frá breyttum skilmálum er þér frjálst að gera það. Ef samningi á milli málsaðila er ekki sagt upp þýðir það að þú samþykkir uppfærða samningsskilmála. Nýir skilmálar verða kynntir á vefsíðu okkar ásamt útgáfu nýju skilmálanna.